Veruleikafirrtur veruleiki Bárðar
Fluttur
Washington DC
nýjusrstu uppfærslu Stúdentaleikhússins. Nú rýkur fólk upp og
hyggst ráðast á næsta mann í vonbrigðum sínum en ekki gera það...
verið vinir. Ég tók mig til á æfingunni í gær og dró úr
leikstjóranum að velja mig í hlutverk þar sem að ég þyrfti að
hverfa af landi brott í viku á æfingatímabilinu. Engin biturð á
ferð eins og eflaust væri ef ég væri ekki á leið úr landi. En
allavega er nokkuð ljóst að maður er á leið til USA í mars eða
apríl með fjölmiðlafræðinni. Washington DC fær að njóta samvistar
minnar í heilan vikutíma. Þar mun ég gera mitt besta í að hjálpa
Clinton eða Obama í að sigra hinn illa herra Bush. En ég nenni ekki
að hafa þetta lengra.
Nöldurhorn
reyna að minnka kaffineyslu. Sérstaklega þegar maður á lítinn sem
engann pening. Nú spyr almenningur enn og aftur ¨Er Bárður orðinn
snargeðveikur?¨ Nei það er ég nú ekki en hins vegar er ekkert
netsamband í íbúð bróður míns og ég þarf að treysta á kaffihúsin
eða skólann þegar mig ég þarf eða langar að skella mér á
internetið. Kaffi er það ódýrasta sem maður fær á kaffihúsum,
allavega á Brennslunni. Ég þarf að fá mér það ódýrasta þar sem að
aleiga mín er í kringum 300 krónur. Það væri ekki vitlaust að eiga
300 Evrur. Það væri ekki leiðinlegt ef að krónunni yrði skipt út
fyrir Evru en ekki yrði tekið tillit til gengisins. Þannig að 300
krónur yrðu 300 Evrur. Er það ekki bara svar við fátækt? Er ekki
hægt að redda þessu þannig? Ég gæti keypt aðeins fleiri kaffibolla,
sínum málum með tapi á móti Dönum. Ef þeir vinna þá er ég handviss
um að þeir komist í úrslit. Ef þeir vinna spila þeir við Rússa eða
Pólverja. Ætla að spá því að Pólverjar vinni Rússa og komist í
undanúrslit. Það er gjörsamlega ómögulegt að ætla að spá Íslandi
ósigri á móti Dönum. Íslendingarnir komast í úrslit en tapar fyrir
Frökkum. Besti árangur landsliðsins frá upphafi, annað sæti, alveg
Stúdentaleikhúsinu fyrir næsta leikverk fer ég til Washington með
Fjölmiðlafræðiáfangnum mínum. Skoðum þá máski Washington Post og
eitthvað skemmtilegt. Síðan er alltaf gaman að æfa og sýna leikrit.
Æfing í kvöld í miðjum Danaleiknum. Gátu ekki frestað æfingunni um
korter vegna þess að það voru einhverjir sem vildu ekki fresta
æfingu í Svíaleiknum í fótbolta fyrir jól. Það var í undankeppni EM
í fótbolta en nú eru áttaliða úrslit í handbolta. Ísland getur
ekkert í fótbolta, Ísland getur fullt í handbolta. Það er regla að
Ísland tapar fyrir Svíum í öllum íþróttum. Undantekningin sem
sannar reglunna er þegar við tókum þá 17. júní í Höllinni. Ísland
hefur oft unnið Dani í handbolta. Sé ekkert samansem merki milli
Ísland-Svíþjóð í fótbolta og Ísland-Danmörk í handbolta.
Metnaðurinn er þó það mikill að ég skelli mér frekar á æfingu en að
skrópa fyrir leikinn. Finnst þetta samt frekar lélegt, við erum að
tala um korter. En eins og oft virðist vera eiga íþróttir og
leiklist ekki saman. Ekki núna frekar en þegar fyrsti fundur fyrir
sýninguna Blóðberg var sama dag og Valur-Fram var í bikarúrslitum
karla í fótbolta árið 2005. Var ekkert alltof sáttur þá heldur en
þó skiljanlegra þar sem Valsarar og Framarar voru ekki í
meirihluta. Nú eru Íslendingar í meirihluta í Stúdentaleikhúsinu.
Hvað er í gangi?
Spaugstofuna. Eitthvað kómískt að sjá Karl Ágúst leika 26 ára strák
í barnafötum sem er verið að sækja í leikskólann. Nú bý ég mig
undir það að kjósa í Söngvakeppni Sjónvarpsins. Fullkomlega
réttlátanleg spurning væri ¨Er Bárður orðinn snargeðveikur?¨ en
útskýringin liggur í því að Doktorinn er aftur að spila á bassa í
einu laganna. Vissulega styður maður strákinn. Hef hér með átakið
¨Doktorinn til Finnlands¨. Það væri jú magnað. En ég er semsagt
ekki snargeðveikur...bara nett þunnur. En önnur réttlátanleg
spurning er hvort maður eigi að gera eitthvað í kvöld, boðinn í
afmæli hjá stelpu í Stúdó. Bláedrú meika ég ekki miðbæ
Reykjavíkurborgar allt of lengi. Maður hlýtur að velta hlutunum
Ragnhildur Steinunn má eiga það að hún er alveg frekar lagleg snót.
Áfram Ísland
íþróttagreinum. Handbolti er töff íþróttagrein. Körfubolti er
amerísk barnaíþrótt miðað við handbolta. Hversu snargeðveikur þarf
maður að vera til að reyna að komast fram hjá tröllum eins og
Sigfúsi Sigurðssyni og Róberti Gunnarssyni. Who gives a fuck þó að
þetta sé ekki algengasta íþróttagrein í heimi, íslendingar eru
allavega góðir í handbolta. Shit hvað maður var við það að missa
sig þegar ljóst var að Ísland væru að taka þessa hrokafullu
Ég finn aldrei nógu djúsí titil!!!
Nú gerðu maður sér dagarmun í gærkvöldi. Eflaust eiga sumir eftir
að gapa af undrun og jafnvel þarf að koma sumum undir læknishendur
við þessar fréttir en ég fór og fylgdist með útsendingu á
Söngvakeppni Sjónvarpsins. Ég nýtti mér það að erkitöffarinn og
læknisfræðineminn Dr. Sibbi spilaði..... á bassa í einu laganna og
reddaði mér boðsmiða. Hann sló Hreim algjörlega við í töffaraskap.
Þetta var líka bara miklu skemmtilegra en ég bjóst við get ég sagt
ykkur. Lög hljóma einhvern veginn alltaf betur þegar maður er á
staðnum í stað þess að sitja fyrir framan imbakassann með kók og
popp í kjöltunni. Ég er ekki að segja að þetta hafi verið eitthvað
himneskar tónsmíðar en þetta var bara svona Eurovisionpopp. Silvía
Nótt var líka á staðnum. En Doktorinn stóð sig með prýði og verður
hér með kallaður atvinnutöffarinn á bloggi þessu. Eurovision er nú
einu sinni bara það sem allir á þessu skeri fylgjast með á einn eða
annan hátt sama hvað þeir hafa um það að segja. Fólkið sem heldur
því fram að þessu lög hafi verið ömurleg geta ekkert sagt það nema
að hafa horft á þessa keppni. Ég er viss um að áhorfið á þessa
útsendingu hafi verið mjög svo hátt þrátt fyrir að aðeins lítill
hluti viðurkenni að hafa horft á þetta. En fólk verður jú að halda
sínu stolti með sínum hætti. En allavega hafa þeir kumpánar Birkir
og Doktorinn báðir slegið mig við í fjölda áhorfanda á performans.
Birkir spilandi fótbolta á hverri viku á sumrin með sirka þúsund
áhorfendur fyrir framan sig og Doktorinn að töffarast í Eurovision
fyrir framan 600 manns, ekki bara einu sinni heldur tvisar. Ég þarf
að redda mér hlutverki í bíómynd til að ná þeim. Aldrei meira en
eftir jólafrí í vikunni. Leikstjórinn er víst heldur óþekktur og má
kannski segja að Stúdentaleikhúsið hafi snúið aftur að grasrót
leiklistarinnar en síðustu leikstjórar hafa verið landsþekktir
Vesturportliðar, Björn Hlynur og Víkingur Kristjáns. Held að þetta
sé mjög rétt ákvörðun að ráða ungan og tiltölulega óreyndan
leikstjóra í stað þess að ráða einhvern Hilmi Snæ. Ekki það að mér
líki ekki við þessa fyrrnefndu leikstjóra heldur held ég að
Stúdentaleikhúsið sé vettvangur fyrir aðra að þessu sinni. Flott að
fá svona stór nöfn endrum og sinnum. Ég veit það ekki, stjórnin
Tvífarar
einkennst mikið af sjónvarpsgláp. Hámarkinu var náð á sunnudag
þegar Alan Shore, Danny Crane og félagar í Boston Legal birtust á
Skjá einum á sunnudag. Eftir að hafa horft á í skamma stund tók ég
eftir einu. Jerry Espenson, lögfræðingurinn með
Aspergen-heilkennið, og Ari Edwald, framkvæmdastjóri 365
fjölmiðlasamsteypunar eru tvífarar. Hefur Ari eitthvað verið að
spreyta sig í leiklistinni, veit Jón Ásgeir af þessu. Dæmi hver
innihalda tvífara nafntogaðra Íslendinga vegna þess að aðalpersóna
þáttanna ¨House¨, Dr. Gregory House, er alveg ótrúlega lík Þórhalli
Gunnarssyni, ritstjóra Kastljóss. Nú er Þórhallur leikari og
spurning hvort hann hafi verið á ferð í Bandaríkjunum á meðan
halli höfðinu svolítið niður og líta upp. Höfundur þessa lúkks er
vissulega Sigmundur Ernir Rúnarsson. Þetta lúkk náði hámarki þegar
sjálfur Bogi Ágústsson reyndi þetta lúkk á sama tíma og hann reyndi
nýja hárgreiðslu. Of mikið á of skömmum tíma Bogi. Aðrir tvífarar
ótrúlega svipaðar týpur og góðir vinir öfugt við það sem haldið var
fram í sýningu Stúdentaleikhússins, ¨Þú ert enginn Johnny Depp¨.
2007 frh.
Allan Júlímánið mun ég liggja á spítala í dái í þrjár vikur þegar
ég bjarga kornabarni frá því að verða fyrir bíl með því að henda
mér fyrir bíl á Bústaðaveginum. Eftir að ég vakna mun ég halda í
rúma viku að ég sé blómálfur og tala í bundnu máli. Dagur B.
Eggertsson mun nota tækifærið og skrifa viðtalsbók og mun hún
kallast Blómálfasaga. Ári seinna mun Anna Sigríður
Skarphéðinsdóttir skrifa leikrit byggða á bókinni. Þá hefur hún
orðið frægt nafn vegna bókar hennar ¨Kaffi, ekki karlmenn¨ sem
kemur út í nóvember og veldur stríðsástandi í bókabúðum landsins.
Enn og aftur stendur Mark Hamill á öndinni. En bráðlega átta ég mig
að ég er ekki blómálfur heldur bara Bárður. Ágústmánuðurinn verður
tími hvíldar eftir blómálfaflippið og mun Paris Hilton flytja til
mín og verða mér innan handar. Á þeim tíma skrifum við í sameiningu
skáldsögu þar sem ævi mín og hennar fléttast saman á snilldarlegan
hátt. Inn í þá sögu fléttist mótmæli við innrás Bandaríkjamanna í
Belgíu eftir að þar finnst olíuauðlind sem lítur út fyrir að vera
sú stærsta í Evrópu. Britney Spears kemur síðan í heimsókn snemma í
september í kjölfarið á nýrri undirfatalínu sem hún er í forsvari
fyrir. Henni bregður illilega þegar hún sér Paris Hilton í
lopapeysu að skera gulrætur í grænmetisréttinn sem við ætlum okkar
að elda. Hún mun þá vera í einhverjum pælingum um að skrifa
uppskriftabók einungis með grænmetisréttum en nám hennar í
grafískri hönnun er það tímafrekt að það setur strik í reikninginn.
Hún ákveður loks í október að fresta gerð bókarinnar fram yfir
næstu áramót. Britney ákveður að yfirgefa landið fyrr en hún ætlaði
sér en er áberandi þögul og hugsi í flugvélinni. Í október hringir
hún í Paris Hilton gráti nær og spyr hvort að hún megi ekki fá að
búa í íbúðinni með okkur. Hún fær það að sjálfsögðu en hún býr ekki
lengi þar vegna þess að Jón Steinar Garðarsson Mýrdal býður henni
að búa í kommúninni við Langholtsveg þar sem að hann býr ásamt
Hafdísi, Orra Dýrasyni, Pálma Rafni Pálmasyni og Randveri
Þorlákssyni. Eins og áður sagði kemur ¨Kaffi, ekki karlmenn¨ út í
nóvember og einungis mánuði seinna kemur bíómynd út byggð á
bókinni. Þar leik ég eitt af burðarhlutverkunum, nefnilega góða
gæjann sem klúðrar öllum deitum og aðalsöguhetjan fyllist samúð
með. Hugh Grant Íslands verður fyrirsögnin í Fiskifréttum og
Vesturbæjarblaðinu undir mynd af mér í Jógastöðu. Baddi í Jeff Who?
og Britney Spears byrja saman. Ég mun neita að halda upp á afmælið
mitt í nóvember vegna þess að það myndi einungis hjálpa
stórfyrirtækjum ef að fólk fer út í búð til að kaupa gjafir handa
mér. Í stað þess mun ég nota afmælisdaginn til þess að lesa góða
bók. Desember verður vissulega hátíðlegur og spila ég stórt
hlutverk í Áramótaskaupinu sem verður undir umsjón
Stúdentaleikhússins. Fleiri leikarar koma þó við sögu og mun Karl
Ágúst Úlfsson fara á kostum með túlkun sinni á mér. Öllum að óvörum
leikur Paris Hilton sjálfa sig og kemur fram í sjónvarpi í fyrsta
skipti síðan hún breytti um lífsstíl. En nóg um það. Svona verður
árið 2007, skemmtilega og tjah meðalflippað.
2007
baka. Endaði árið í faðmi fjölskyldunnar og hitti síðan vini eftir
miðnætti. Skelltum okkur á Broadway og í fyrst skipti voru áramótin
frekar léleg, skemmti mér ekkert sérstaklega. En úr því verður bætt
á árinu. Janúar mun einkennast af handbolta og þjóðarstolti þar sem
að íslenska landsliðið endar í þriðja sæti í mótinu. Í febrúar mun
Birkir Már Sævarsson ganga til liðs við norska liðið Fredriksstad
og skrifar undir samning sem er mun betri en sá sem hann hefur hjá
Val. Þar mun hann festa kaup í millu í útjaðri bæjarins með
sundlaug og þernu. Sjálfur mun ég heimsækja hann og efna til stutts
sambands með þernunni en það flosnar upp þar sem að mér líkar ekki
við það að hún noti ekki Ajax hreinsivökva. Ég rýk út í fússi og í
kjölfarið er hún rekin úr starfinu þegar ég upplýsi Birki að hún
noti ekki Ajax. Mars fer aðallega í það að aflýsa því að uppsögnin
verði að dómsmáli. Þar mun ég þurfa að nota persónutöfra mína
mikið. Það verður ekki nóg þar sem að Sigurbjörn þarf að beita sig
í málinu og býður henni ókeypis læknaþjónustu eftir að hann hefur
lokið námi sínu. Í apríl frumsýnir Stúdentaleikhúsið leikuppfærslu
af Tinna og Pikkarónunum í leikstjórn Gunnars Helgasonar. Tónlistin
verður í umsjón Geirs Ólafssonar. Þar mun ég leika Kolbein kaftein.
Túlkun mín verður sögð á heimsmælikvarða og stór nöfn eins og Bo
Derek, Brooke Shields og Mark Hamill standa í öndinni. Í maí verða
kosningar og Framsóknarflokkurinn fær 2,5 prósent á landsvísu og
fær forsætisráðherraembættið. Frjálslyndir og Sjálfstæðisflokkur
fara með þeim í stjórn. Sjálfur kemst ég í heimspressuna þegar ég
sést fara upp í hótelherbergi með Paris Hilton. Í raun spjöllum við
bara saman og ég geri henni grein fyrir því hvað hún er að gera við
líf sitt. Hún flytur í kjölfarið í litla íbúð í hundraðogeinum og
hefur nám í grafískri hönnun í LHÍ. Við verðum í stöðugu sambandi
sem um tíma lítur út fyrir að þróast í eitthvað meira en bara
einkennast af dómsmáli þar sem ég er kærður fyrir að ráðast á
blaðaljósmyndara. Ég er dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið
fangelsi. Sama mánuð verður 27 ára karlmaður dæmdur í eins mánaða
fangelsi eftir að hafa nauðgað og skvett sýru á 16 ára stelpu og
síðan lokað hana inni í litlum hundakofa í þrjá mánuði og einungis
gefið henni brauð og vatn. Seinni helmingur spáarinnar kemur innan
tíðar, bíðið spennt.
FýlóPýló
sig af reiði yfir því að Dominoz sendi jólakveðju með sms-i á
aðfangadegi. Fólk er að saka þá um að auglýsa sjálfan sig. Ég veit
ekki en ég opnaði Fréttablaðið og Moggann á aðfangadag og sá alveg
fullt af auglýsingum þar sem fyrirtæki óskuðu lesendum gleðilegra
jóla. Ég þakka bara þessum auglýsendum kærlega fyrir mig og óska
þeim sömuleiðis gleðilegra jóla. Fólk er að tryllast yfir því að
Dominoz sendi óvart eitthvað af sms-um eftir klukkan sex á allra
heilagasta tíma. Jæja... sjálfur fékk ég tvö sms frá vinum með
óskum um gleðileg jól á þessum tíma og svo að það sé á hreinu er ég
sendi bæjarbúum geisladisk með Bo Halldórs pökkuðum í álpappír.
Nokkrir bæjarbúar gerðu sér lítið fyrir og skiluðu þeim gjöfunum
vegna þess að þeir vilja ekki að álverið í Straumsvík stækki. En í
staðinn fyrir diskanna fengu þeir kaffiboð frá Rannveigu Rist og
félögum sem og vöfflur. Í fréttunum sá ég myndir af þessu fólki
skælbrosandi að drekka kaffi og úða í sig vöfflum. Eitthvað
öfugsnúið eða er ég að misskilja. Það er semsagt ekki í lagi að
þyggja geisladisk með Bo en það er í lagi þiggja kaffi og vöfflur.
Come on people.... þetta er bara kjánalegt. Hirðið bara diskinn.
Eru fólk ekki fullmiklir fýlupúkar svona yfir jólin.
Hmmm...
í Skúffuna og einhverri mynd á ¨Hver er ég¨ dæmið. Veit ekki alveg
hví ég er að blogga. Tjahh maður leyfir sér að pæla.
Öfgar í báðar áttir
jakkafötum. Það er eins og að Hannes Smárason hafi gubbað mig út úr
sér. Þetta er afskaplega slæmt. Ég ætla snemma að sofa og vakna í
fyrramálið sem venjulegi Bárður sem klæðist bol og gallabuxum og
með svolítið skegg. Öfga-Bárður leit nú dagsins ljós í síðasta
Sigti á Skjá einum. Þar var ég með mikið alskegg og í flauelsjakka
úr Spútnik, voða voða indí og skemmtilegur. Það má segja að ég sé
Öfga-Bárður í hina áttina núna, það er að segja úrgangur úr Hannesi
Eftir þrjú og hálft ár verð ég orðinn master í einhverju ef að allt
Stefni að MA-námi í blaða- og fréttamennsku. Skoðaði lýsingar á
áföngum í því námi og lýst ekkert smá vel á þetta. Ef ég fer að
vinna í sjónvarpi fær Öfga-Bárður að sína athygli. Það
skemmtilegasta sem fréttamenn gera er að kaupa ný
jakkaföt...allavega er það svoleiðis í Anchorman með Will Farell.
Kæra fólk
plötunni Love, nýju Bítlaplötunni. Svei mér þá, það er ekki hægt að
gera þetta betur. Fékk plötunni einmitt í jólagjöf núna í kvöld. Er
núna að hlusta á hana og þetta er eins og að ganga inn í einhverja
draumaveröld með Bítlunum. Upplifun að hlusta á plötuna. Maður
hefur hlustað á flest þessarra laga þúsund sinnum áður en nú er
maður að upplifa þau algjörlega upp á nýtt. George Martin, gamli
upptökustjóri Bítlanna, hefur svo sannarlega unnið stórvirki ásamt
syni sínum sem ég man ekki hvað heitir. Hlakka síðan til að hlusta
á Megasarplötuna þar sem færir söngvarar taka lög eftir meistarann.
Maðurinn hefur samið svo falleg lög en söngstíll hans hefur kannski
takmarkað svolítið lögin. En maður hefur heyrt dívur eins og
Ragnheiði Gröndal syngja lög eftir hann fellur maður alveg fyrir
En nú er jólahátíðin gengin í garð þó að mjög margir hagi sér
eflaust þannig að hún sé að klárast núna fyrst að þeir eru búnir að
kaupa jólagjafir og kaupa matinn. Jólin hjá svo mörgum snúast um
það að kaupa hitt og þetta en allt annað er aukaatriði, að njóta
kyrrðarinnar og halda upp á fæðingu Jesú Krists. Neysluhyggjan er
orðinn stærri en Kristnin. Einhvern tíman heyrði ég haldið fram af
góðum manni að eftir hundrað ár verði muni jólin ekki vera haldin
hátíðleg. Því er ég ekki sammála. Jólin er allt of gott tækifæri
til að græða til þess að hægt sé að sleppa því. Það er hagur þeirra
sem ríkari eru að haldið sé upp á jólin svo þeir geti nú grætt
svolítið meira. Græðgin hefur alltaf verið viðloðinn mannskepnuna
og verður það nú líklega eftir hundrað ár. Ekki er meiningin að
setja sig á háan stall og gagnrýna form hátíðarinnar eins og hún er
í dag enda er ég alveg jafnmikill plebbi og neyslufrík og við flest
á Vesturlöndum. Bara að benda á heiminn eins og ég sé hann. Nú
verður síðan haldið í messu á morgun og samviskan friðuð. En ég
held að ég sé bara hættur að predika yfir ykkur lesendur góðir og
Gleðileg jól
gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Ég ætla að vona að árið
sem framundan er verði jafngott ef ekki jafnvel enn betra en árið
sem er að líða. Vona að við hittumst hress á komandi ári ef ekki
Jól
bókabúðum landsins, sjötugar konur að kaupa þungarokkgeisladiska
fyrir barnabörnin sín og Birkir verður svo stressaður að báðir
persónuleikar hans koma fram (sjá kommentakerfið eftir síðustu
færslu. Það er greinilega að koma jól. Ég er fús til að viðurkenna
það nú fyrst að maður er búinn í prófum. Var reyndar alveg einum of
kærulaus í gær, í síðasta prófinu, svaf yfir mig og mætti tíu
mínútum of seint. Með okkur félagsfræðinemum voru
ofurmetnaðarfullir læknisfræðinemar sem horfðu á mig með
hneykslissvip ganga til sætis. En ég tæklaði prófið og allt gekk
vel og ég er hættur að hugsa í tölfræði.. Síðan er maður farinn að
vinna upp í Hlíðaskóla. Þar mun ég breyta lífi og lífsviðhorfi
barnanna til nánustu framtíðar. Um kvöldið var síðan djammað
eitthvað á Nasa þar sem Sálin var að spila. Og hver haldið þið að
hafi verið að halda upp á fertugsafmælið sitt þar fyrr um kvöldið
nema Logi gamli Bergmann. Róbert Marshall, Helgi Seljan og
Þórhallur Gunnarsson voru hressir að vanda. En nóg er sagt.