Veruleikafirrtur veruleiki Bárðar

Bárður tjáir sig

14.02.2007 18:57:22 / bardur84

Fluttur

Heija

Hef flutt mig yfir á bardurih.blog.is

 

Munið að breyta linkalistanum ykkar.


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.02.2007 21:11:46 / bardur84

Washington DC

Jæja. nú kom að því, undirskrifaður var ekki valinn í hlutverk í nýjusrstu uppfærslu Stúdentaleikhússins. Nú rýkur fólk upp og hyggst ráðast á næsta mann í vonbrigðum sínum en ekki gera það... verið vinir. Ég tók mig til á æfingunni í gær og dró úr leikstjóranum að velja mig í hlutverk þar sem að ég þyrfti að hverfa af landi brott í viku á æfingatímabilinu. Engin biturð á ferð eins og eflaust væri ef ég væri ekki á leið úr landi. En allavega er nokkuð ljóst að maður er á leið til USA í mars eða apríl með fjölmiðlafræðinni. Washington DC fær að njóta samvistar minnar í heilan vikutíma. Þar mun ég gera mitt besta í að hjálpa Clinton eða Obama í að sigra hinn illa herra Bush. En ég nenni ekki að hafa þetta lengra.

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 17:58:38 / bardur84

Nöldurhorn

Það er alveg rosalega erfitt að vera án internets samhliða það að reyna að minnka kaffineyslu. Sérstaklega þegar maður á lítinn sem engann pening. Nú spyr almenningur enn og aftur ¨Er Bárður orðinn snargeðveikur?¨ Nei það er ég nú ekki en hins vegar er ekkert netsamband í íbúð bróður míns og ég þarf að treysta á kaffihúsin eða skólann þegar mig ég þarf eða langar að skella mér á internetið. Kaffi er það ódýrasta sem maður fær á kaffihúsum, allavega á Brennslunni. Ég þarf að fá mér það ódýrasta þar sem að aleiga mín er í kringum 300 krónur. Það væri ekki vitlaust að eiga 300 Evrur. Það væri ekki leiðinlegt ef að krónunni yrði skipt út fyrir Evru en ekki yrði tekið tillit til gengisins. Þannig að 300 krónur yrðu 300 Evrur. Er það ekki bara svar við fátækt? Er ekki hægt að redda þessu þannig? Ég gæti keypt aðeins fleiri kaffibolla, ætti jafnvel fyrir heitu súkkulaði.
    Er landsliðið í handbolta að fara að klúðra sínum málum með tapi á móti Dönum. Ef þeir vinna þá er ég handviss um að þeir komist í úrslit. Ef þeir vinna spila þeir við Rússa eða Pólverja. Ætla að spá því að Pólverjar vinni Rússa og komist í undanúrslit. Það er gjörsamlega ómögulegt að ætla að spá Íslandi ósigri á móti Dönum. Íslendingarnir komast í úrslit en tapar fyrir Frökkum. Besti árangur landsliðsins frá upphafi, annað sæti, alveg eins og Eurovision.  Sko mig, Pólverjar eru tveim yfir í hálfleik. 
    Ef ég kemst ekki í lokahópinn í Stúdentaleikhúsinu fyrir næsta leikverk fer ég til Washington með Fjölmiðlafræðiáfangnum mínum. Skoðum þá máski Washington Post og eitthvað skemmtilegt. Síðan er alltaf gaman að æfa og sýna leikrit. Æfing í kvöld í miðjum Danaleiknum. Gátu ekki frestað æfingunni um korter vegna þess að það voru einhverjir sem vildu ekki fresta æfingu í Svíaleiknum í fótbolta fyrir jól. Það var í undankeppni EM í fótbolta en nú eru áttaliða úrslit í handbolta. Ísland getur ekkert í fótbolta, Ísland getur fullt í handbolta. Það er regla að Ísland tapar fyrir Svíum í öllum íþróttum. Undantekningin sem sannar reglunna er þegar við tókum þá 17. júní í Höllinni. Ísland hefur oft unnið Dani í handbolta. Sé ekkert samansem merki milli Ísland-Svíþjóð í fótbolta og Ísland-Danmörk í handbolta. Metnaðurinn er þó það mikill að ég skelli mér frekar á æfingu en að skrópa fyrir leikinn. Finnst þetta samt frekar lélegt, við erum að tala um korter. En eins og oft virðist vera eiga íþróttir og leiklist ekki saman. Ekki núna frekar en þegar fyrsti fundur fyrir sýninguna Blóðberg var sama dag og Valur-Fram var í bikarúrslitum karla í fótbolta árið 2005. Var ekkert alltof sáttur þá heldur en þó skiljanlegra þar sem Valsarar og Framarar voru ekki í meirihluta. Nú eru Íslendingar í meirihluta í Stúdentaleikhúsinu. En þetta var nöldurhorn Bárðar.

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.01.2007 21:52:04 / bardur84

Hvað er í gangi?

Ójá, hið ómögulega gerðist, ég skellti upp úr þegar ég glápti á Spaugstofuna. Eitthvað kómískt að sjá Karl Ágúst leika 26 ára strák í barnafötum sem er verið að sækja í leikskólann. Nú bý ég mig undir það að kjósa í Söngvakeppni Sjónvarpsins. Fullkomlega réttlátanleg spurning væri ¨Er Bárður orðinn snargeðveikur?¨ en útskýringin liggur í því að Doktorinn er aftur að spila á bassa í einu laganna. Vissulega styður maður strákinn. Hef hér með átakið ¨Doktorinn til Finnlands¨. Það væri jú magnað. En ég er semsagt ekki snargeðveikur...bara nett þunnur. En önnur réttlátanleg spurning er hvort maður eigi að gera eitthvað í kvöld, boðinn í afmæli hjá stelpu í Stúdó. Bláedrú meika ég ekki miðbæ Reykjavíkurborgar allt of lengi. Maður hlýtur að velta hlutunum fyrir sér.

Ragnhildur Steinunn má eiga það að hún er alveg frekar lagleg snót.

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.01.2007 20:05:11 / bardur84

Áfram Ísland

Jón Gnarr sagði í uppistandi sínu að Ísland væru bara góðir í töff íþróttagreinum. Handbolti er töff íþróttagrein. Körfubolti er amerísk barnaíþrótt miðað við handbolta. Hversu snargeðveikur þarf maður að vera til að reyna að komast fram hjá tröllum eins og Sigfúsi Sigurðssyni og Róberti Gunnarssyni. Who gives a fuck þó að þetta sé ekki algengasta íþróttagrein í heimi, íslendingar eru allavega góðir í handbolta. Shit hvað maður var við það að missa sig þegar ljóst var að Ísland væru að taka þessa hrokafullu Frakka.

Áfram Ísland!!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.01.2007 15:39:06 / bardur84

Ég finn aldrei nógu djúsí titil!!!

Jæja kleinuhringirnir mínir.
Nú gerðu maður sér dagarmun í gærkvöldi. Eflaust eiga sumir eftir að gapa af undrun og jafnvel þarf að koma sumum undir læknishendur við þessar fréttir en ég fór og fylgdist með útsendingu á Söngvakeppni Sjónvarpsins. Ég nýtti mér það að erkitöffarinn og læknisfræðineminn Dr. Sibbi spilaði..... á bassa í einu laganna og reddaði mér boðsmiða. Hann sló Hreim algjörlega við í töffaraskap. Þetta var líka bara miklu skemmtilegra en ég bjóst við get ég sagt ykkur. Lög hljóma einhvern veginn alltaf betur þegar maður er á staðnum í stað þess að sitja fyrir framan imbakassann með kók og popp í kjöltunni. Ég er ekki að segja að þetta hafi verið eitthvað himneskar tónsmíðar en þetta var bara svona Eurovisionpopp. Silvía Nótt var líka á staðnum. En Doktorinn stóð sig með prýði og verður hér með kallaður atvinnutöffarinn á bloggi þessu. Eurovision er nú einu sinni bara það sem allir á þessu skeri fylgjast með á einn eða annan hátt sama hvað þeir hafa um það að segja. Fólkið sem heldur því fram að þessu lög hafi verið ömurleg geta ekkert sagt það nema að hafa horft á þessa keppni. Ég er viss um að áhorfið á þessa útsendingu hafi verið mjög svo hátt þrátt fyrir að aðeins lítill hluti viðurkenni að hafa horft á þetta. En fólk verður jú að halda sínu stolti með sínum hætti. En allavega hafa þeir kumpánar Birkir og Doktorinn báðir slegið mig við í fjölda áhorfanda á performans. Birkir spilandi fótbolta á hverri viku á sumrin með sirka þúsund áhorfendur fyrir framan sig og Doktorinn að töffarast í Eurovision fyrir framan 600 manns, ekki bara einu sinni heldur tvisar. Ég þarf að redda mér hlutverki í bíómynd til að ná þeim. Aldrei meira en svona 150 manns að mesta lagi í sýningu sem ég leik í.
    Stúdentaleikhúsið hóf nú formlega starfsemi sína eftir jólafrí í vikunni. Leikstjórinn er víst heldur óþekktur og má kannski segja að Stúdentaleikhúsið hafi snúið aftur að grasrót leiklistarinnar en síðustu leikstjórar hafa verið landsþekktir Vesturportliðar, Björn Hlynur og Víkingur Kristjáns. Held að þetta sé mjög rétt ákvörðun að ráða ungan og tiltölulega óreyndan leikstjóra í stað þess að ráða einhvern Hilmi Snæ. Ekki það að mér líki ekki við þessa fyrrnefndu leikstjóra heldur held ég að Stúdentaleikhúsið sé vettvangur fyrir aðra að þessu sinni. Flott að fá svona stór nöfn endrum og sinnum. Ég veit það ekki, stjórnin ræður þessu, þau eru töff.


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.01.2007 20:05:29 / bardur84

Tvífarar

Hæ hó.

Nú er síðasta viku jólafrísins að líða. Fríið hefur hingað til einkennst mikið af sjónvarpsgláp. Hámarkinu var náð á sunnudag þegar Alan Shore, Danny Crane og félagar í Boston Legal birtust á Skjá einum á sunnudag. Eftir að hafa horft á í skamma stund tók ég eftir einu. Jerry Espenson, lögfræðingurinn með Aspergen-heilkennið, og Ari Edwald, framkvæmdastjóri 365 fjölmiðlasamsteypunar eru tvífarar. Hefur Ari eitthvað verið að spreyta sig í leiklistinni, veit Jón Ásgeir af þessu. Dæmi hver fyrir sig.

                 

Jerry Espenson                         Ari Edwald

Það lítur út fyrir að Skjár einn sérhæfi sig í að sýna þætti sem innihalda tvífara nafntogaðra Íslendinga vegna þess að aðalpersóna þáttanna ¨House¨, Dr. Gregory House, er alveg ótrúlega lík Þórhalli Gunnarssyni, ritstjóra Kastljóss. Nú er Þórhallur leikari og spurning hvort hann hafi verið á ferð í Bandaríkjunum á meðan upptökur á þáttunum fóru fram. Lítum á mynd af þeim tveim.

                        

Dr. Gregory House               Þórhallur Gunnarsson

Nú hafa þeir báðir svipað lúkk sem lýsir sér þannig að þeir halli höfðinu svolítið niður og líta upp. Höfundur þessa lúkks er vissulega Sigmundur Ernir Rúnarsson. Þetta lúkk náði hámarki þegar sjálfur Bogi Ágústsson reyndi þetta lúkk á sama tíma og hann reyndi nýja hárgreiðslu. Of mikið á of skömmum tíma Bogi. Aðrir tvífarar eru til að mynda Johnny Depp og Bárður Ingi Helgason. Alveg ótrúlega svipaðar týpur og góðir vinir öfugt við það sem haldið var fram í sýningu Stúdentaleikhússins, ¨Þú ert enginn Johnny Depp¨. Lítið bara á myndirnar

                                     :OVsyr8UdKX_klM:http://i.imdb.com/Photos/Events/2030/JohnnyDepp_Grani_1247119_400.jpg" width="98">

Bárður Ingi Helgason                             Johnny Depp

Já svona er lífið skrýtið.


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.01.2007 16:25:22 / bardur84

2007 frh.

Komið þið sæl rassgötin mín. Dagurinn er runninn upp, síðari hluti völvuspárinnar um árið verður birt í þessari færslu.
Allan Júlímánið mun ég liggja á spítala í dái í þrjár vikur þegar ég bjarga kornabarni frá því að verða fyrir bíl með því að henda mér fyrir bíl á Bústaðaveginum. Eftir að ég vakna mun ég halda í rúma viku að ég sé blómálfur og tala í bundnu máli. Dagur B. Eggertsson mun nota tækifærið og skrifa viðtalsbók og mun hún kallast Blómálfasaga. Ári seinna mun Anna Sigríður Skarphéðinsdóttir skrifa leikrit byggða á bókinni. Þá hefur hún orðið frægt nafn vegna bókar hennar ¨Kaffi, ekki karlmenn¨ sem kemur út í nóvember og veldur stríðsástandi í bókabúðum landsins. Enn og aftur stendur Mark Hamill á öndinni. En bráðlega átta ég mig að ég er ekki blómálfur heldur bara Bárður. Ágústmánuðurinn verður tími hvíldar eftir blómálfaflippið og mun Paris Hilton flytja til mín og verða mér innan handar. Á þeim tíma skrifum við í sameiningu skáldsögu þar sem ævi mín og hennar fléttast saman á snilldarlegan hátt. Inn í þá sögu fléttist mótmæli við innrás Bandaríkjamanna í Belgíu eftir að þar finnst olíuauðlind sem lítur út fyrir að vera sú stærsta í Evrópu. Britney Spears kemur síðan í heimsókn snemma í september í kjölfarið á nýrri undirfatalínu sem hún er í forsvari fyrir. Henni bregður illilega þegar hún sér Paris Hilton í lopapeysu að skera gulrætur í grænmetisréttinn sem við ætlum okkar að elda. Hún mun þá vera í einhverjum pælingum um að skrifa uppskriftabók einungis með grænmetisréttum en nám hennar í grafískri hönnun er það tímafrekt að það setur strik í reikninginn. Hún ákveður loks í október að fresta gerð bókarinnar fram yfir næstu áramót. Britney ákveður að yfirgefa landið fyrr en hún ætlaði sér en er áberandi þögul og hugsi í flugvélinni. Í október hringir hún í Paris Hilton gráti nær og spyr hvort að hún megi ekki fá að búa í íbúðinni með okkur. Hún fær það að sjálfsögðu en hún býr ekki lengi þar vegna þess að Jón Steinar Garðarsson Mýrdal býður henni að búa í kommúninni við Langholtsveg þar sem að hann býr ásamt Hafdísi, Orra Dýrasyni, Pálma Rafni Pálmasyni og Randveri Þorlákssyni. Eins og áður sagði kemur ¨Kaffi, ekki karlmenn¨ út í nóvember og einungis mánuði seinna kemur bíómynd út byggð á bókinni. Þar leik ég eitt af burðarhlutverkunum, nefnilega góða gæjann sem klúðrar öllum deitum og aðalsöguhetjan fyllist samúð með. Hugh Grant Íslands verður fyrirsögnin í Fiskifréttum og Vesturbæjarblaðinu undir mynd af mér í Jógastöðu. Baddi í Jeff Who? og Britney Spears byrja saman. Ég mun neita að halda upp á afmælið mitt í nóvember vegna þess að það myndi einungis hjálpa stórfyrirtækjum ef að fólk fer út í búð til að kaupa gjafir handa mér. Í stað þess mun ég nota afmælisdaginn til þess að lesa góða bók. Desember verður vissulega hátíðlegur og spila ég stórt hlutverk í Áramótaskaupinu sem verður undir umsjón Stúdentaleikhússins. Fleiri leikarar koma þó við sögu og mun Karl Ágúst Úlfsson fara á kostum með túlkun sinni á mér. Öllum að óvörum leikur Paris Hilton sjálfa sig og kemur fram í sjónvarpi í fyrsta skipti síðan hún breytti um lífsstíl. En nóg um það. Svona verður árið 2007, skemmtilega og tjah meðalflippað.

» 4 hafa sagt sína skoðun

01.01.2007 22:57:31 / bardur84

2007

Jæja, nú er árið 2006 liðið í aldanna skaut og aldrei það kemur til baka. Endaði árið í faðmi fjölskyldunnar og hitti síðan vini eftir miðnætti. Skelltum okkur á Broadway og í fyrst skipti voru áramótin frekar léleg, skemmti mér ekkert sérstaklega. En úr því verður bætt á árinu. Janúar mun einkennast af handbolta og þjóðarstolti þar sem að íslenska landsliðið endar í þriðja sæti í mótinu. Í febrúar mun Birkir Már Sævarsson ganga til liðs við norska liðið Fredriksstad og skrifar undir samning sem er mun betri en sá sem hann hefur hjá Val. Þar mun hann festa kaup í millu í útjaðri bæjarins með sundlaug og þernu. Sjálfur mun ég heimsækja hann og efna til stutts sambands með þernunni en það flosnar upp þar sem að mér líkar ekki við það að hún noti ekki Ajax hreinsivökva. Ég rýk út í fússi og í kjölfarið er hún rekin úr starfinu þegar ég upplýsi Birki að hún noti ekki Ajax. Mars fer aðallega í það að aflýsa því að uppsögnin verði að dómsmáli. Þar mun ég þurfa að nota persónutöfra mína mikið. Það verður ekki nóg þar sem að Sigurbjörn þarf að beita sig í málinu og býður henni ókeypis læknaþjónustu eftir að hann hefur lokið námi sínu. Í apríl frumsýnir Stúdentaleikhúsið leikuppfærslu af Tinna og Pikkarónunum í leikstjórn Gunnars Helgasonar. Tónlistin verður í umsjón Geirs Ólafssonar. Þar mun ég leika Kolbein kaftein. Túlkun mín verður sögð á heimsmælikvarða og stór nöfn eins og Bo Derek, Brooke Shields og Mark Hamill standa í öndinni. Í maí verða kosningar og Framsóknarflokkurinn fær 2,5 prósent á landsvísu og fær forsætisráðherraembættið. Frjálslyndir og Sjálfstæðisflokkur fara með þeim í stjórn. Sjálfur kemst ég í heimspressuna þegar ég sést fara upp í hótelherbergi með Paris Hilton. Í raun spjöllum við bara saman og ég geri henni grein fyrir því hvað hún er að gera við líf sitt. Hún flytur í kjölfarið í litla íbúð í hundraðogeinum og hefur nám í grafískri hönnun í LHÍ. Við verðum í stöðugu sambandi sem um tíma lítur út fyrir að þróast í eitthvað meira en bara vinasamband en blaðaljósmyndarar eyðileggja það mál.  Júní einkennast af dómsmáli þar sem ég er kærður fyrir að ráðast á blaðaljósmyndara. Ég er dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi. Sama mánuð verður 27 ára karlmaður dæmdur í eins mánaða fangelsi eftir að hafa nauðgað og skvett sýru á 16 ára stelpu og síðan lokað hana inni í litlum hundakofa í þrjá mánuði og einungis gefið henni brauð og vatn. Seinni helmingur spáarinnar kemur innan tíðar, bíðið spennt.

» 3 hafa sagt sína skoðun

28.12.2006 23:30:07 / bardur84

FýlóPýló

Jæja, það er meira hvað fólk getur verið viðkvæmt. Fólk er að missa sig af reiði yfir því að Dominoz sendi jólakveðju með sms-i á aðfangadegi. Fólk er að saka þá um að auglýsa sjálfan sig. Ég veit ekki en ég opnaði Fréttablaðið og Moggann á aðfangadag og sá alveg fullt af auglýsingum þar sem fyrirtæki óskuðu lesendum gleðilegra jóla. Ég þakka bara þessum auglýsendum kærlega fyrir mig og óska þeim sömuleiðis gleðilegra jóla. Fólk er að tryllast yfir því að Dominoz sendi óvart eitthvað af sms-um eftir klukkan sex á allra heilagasta tíma. Jæja... sjálfur fékk ég tvö sms frá vinum með óskum um gleðileg jól á þessum tíma og svo að það sé á hreinu er ég alls ekkert reiður út í þau.
    Þetta er ekki það eina. Alcan í Hafnarfirði sendi bæjarbúum geisladisk með Bo Halldórs pökkuðum í álpappír. Nokkrir bæjarbúar gerðu sér lítið fyrir og skiluðu þeim gjöfunum vegna þess að þeir vilja ekki að álverið í Straumsvík stækki. En í staðinn fyrir diskanna fengu þeir kaffiboð frá Rannveigu Rist og félögum sem og vöfflur. Í fréttunum sá ég myndir af þessu fólki skælbrosandi að drekka kaffi og úða í sig vöfflum. Eitthvað öfugsnúið eða er ég að misskilja. Það er semsagt ekki í lagi að þyggja geisladisk með Bo en það er í lagi þiggja kaffi og vöfflur. Come on people.... þetta er bara kjánalegt. Hirðið bara diskinn. Eru fólk ekki fullmiklir fýlupúkar svona yfir jólin.

» 4 hafa sagt sína skoðun

25.12.2006 23:28:05 / bardur84

Hmmm...

Hmmm, þrjár færslur á einum sólarhring. Var að vippa einu kvikindi í Skúffuna og einhverri mynd á ¨Hver er ég¨ dæmið. Veit ekki alveg hví ég er að blogga. Tjahh maður leyfir sér að pæla.

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.12.2006 22:21:13 / bardur84

Öfgar í báðar áttir

Mér líður kjánalega svona stuttklipptur, rakaður og í jakkafötum. Það er eins og að Hannes Smárason hafi gubbað mig út úr sér. Þetta er afskaplega slæmt. Ég ætla snemma að sofa og vakna í fyrramálið sem venjulegi Bárður sem klæðist bol og gallabuxum og með svolítið skegg. Öfga-Bárður leit nú dagsins ljós í síðasta Sigti á Skjá einum. Þar var ég með mikið alskegg og í flauelsjakka úr Spútnik, voða voða indí og skemmtilegur. Það má segja að ég sé Öfga-Bárður í hina áttina núna, það er að segja úrgangur úr Hannesi Smárasyni.  Ég væri ekki gjaldgengur í Kaffibarinn núna, þaðan af síður Sirkus...samt er ég tuttuguogtveggja
                                         ég lofa.

Eftir þrjú og hálft ár verð ég orðinn master í einhverju ef að allt gengur eftir....samt verð ég þá bara tuttuguogfimm
                                         ég lofa.
Stefni að MA-námi í blaða- og fréttamennsku. Skoðaði lýsingar á áföngum í því námi og lýst ekkert smá vel á þetta. Ef ég fer að vinna í sjónvarpi fær Öfga-Bárður að sína athygli. Það skemmtilegasta sem fréttamenn gera er að kaupa ný jakkaföt...allavega er það svoleiðis í Anchorman með Will Farell. Hann er skemmtilegur. Ég þakka....
                                          verið þið sæl.

                                     


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.12.2006 03:43:58 / bardur84

Kæra fólk

Mikið rosalega er Strawberry Fields Forever óeðlilega gott á plötunni Love, nýju Bítlaplötunni. Svei mér þá, það er ekki hægt að gera þetta betur. Fékk plötunni einmitt í jólagjöf núna í kvöld. Er núna að hlusta á hana og þetta er eins og að ganga inn í einhverja draumaveröld með Bítlunum. Upplifun að hlusta á plötuna. Maður hefur hlustað á flest þessarra laga þúsund sinnum áður en nú er maður að upplifa þau algjörlega upp á nýtt. George Martin, gamli upptökustjóri Bítlanna, hefur svo sannarlega unnið stórvirki ásamt syni sínum sem ég man ekki hvað heitir. Hlakka síðan til að hlusta á Megasarplötuna þar sem færir söngvarar taka lög eftir meistarann. Maðurinn hefur samið svo falleg lög en söngstíll hans hefur kannski takmarkað svolítið lögin. En maður hefur heyrt dívur eins og Ragnheiði Gröndal syngja lög eftir hann fellur maður alveg fyrir þeim. Man ekki hvort hún eigi lag á plötunni.
En nú er jólahátíðin gengin í garð þó að mjög margir hagi sér eflaust þannig að hún sé að klárast núna fyrst að þeir eru búnir að kaupa jólagjafir og kaupa matinn. Jólin hjá svo mörgum snúast um það að kaupa hitt og þetta en allt annað er aukaatriði, að njóta kyrrðarinnar og halda upp á fæðingu Jesú Krists. Neysluhyggjan er orðinn stærri en Kristnin. Einhvern tíman heyrði ég haldið fram af góðum manni að eftir hundrað ár verði muni jólin ekki vera haldin hátíðleg. Því er ég ekki sammála. Jólin er allt of gott tækifæri til að græða til þess að hægt sé að sleppa því. Það er hagur þeirra sem ríkari eru að haldið sé upp á jólin svo þeir geti nú grætt svolítið meira. Græðgin hefur alltaf verið viðloðinn mannskepnuna og verður það nú líklega eftir hundrað ár. Ekki er meiningin að setja sig á háan stall og gagnrýna form hátíðarinnar eins og hún er í dag enda er ég alveg jafnmikill plebbi og neyslufrík og við flest á Vesturlöndum. Bara að benda á heiminn eins og ég sé hann. Nú verður síðan haldið í messu á morgun og samviskan friðuð. En ég held að ég sé bara hættur að predika yfir ykkur lesendur góðir og enn og aftur óska ég ykkur gleðilegra jóla.

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.12.2006 14:42:55 / bardur84

Gleðileg jól

Jæja, elsku vinir og vinkonur.

Finn fyrir mikilli löngun til þess að óska ykkur og ykkar gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Ég ætla að vona að árið sem framundan er verði jafngott ef ekki jafnvel enn betra en árið sem er að líða. Vona að við hittumst hress á komandi ári ef ekki fyrr. Kæra kveðja, Bárður Ingi.

                                          http://www.cultureandrecreation.gov.au/articles/christmas/images/violet_teague_web.jpg


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.12.2006 20:34:24 / bardur84

Jól

Langar raðir af allskonar svöngu, þreyttu, stressuðu fólki í bókabúðum landsins, sjötugar konur að kaupa þungarokkgeisladiska fyrir barnabörnin sín og Birkir verður svo stressaður að báðir persónuleikar hans koma fram (sjá kommentakerfið eftir síðustu færslu. Það er greinilega að koma jól. Ég er fús til að viðurkenna það nú fyrst að maður er búinn í prófum. Var reyndar alveg einum of kærulaus í gær, í síðasta prófinu, svaf yfir mig og mætti tíu mínútum of seint. Með okkur félagsfræðinemum voru ofurmetnaðarfullir læknisfræðinemar sem horfðu á mig með hneykslissvip ganga til sætis. En ég tæklaði prófið og allt gekk vel og ég er hættur að hugsa í tölfræði.. Síðan er maður farinn að vinna upp í Hlíðaskóla. Þar mun ég breyta lífi og lífsviðhorfi barnanna til nánustu framtíðar. Um kvöldið var síðan djammað eitthvað á Nasa þar sem Sálin var að spila. Og hver haldið þið að hafi verið að halda upp á fertugsafmælið sitt þar fyrr um kvöldið nema Logi gamli Bergmann. Róbert Marshall, Helgi Seljan og Þórhallur Gunnarsson voru hressir að vanda. En nóg er sagt.

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Fólk sem ég þekki ekki en ég skoða bloggin þeirra.